Bloggfærslur mánaðarins, mars 2012

"Umframhagnaður" ræddur á Alþingi og bréf til SAF

Ég rataði óvart á vefsíðu Alþingis í gær. Þór Saari

Ég var svo viss um að ég yrði leiðinlegur og neikvæður á eftir að horfa á umræður um nýtt kvótafrumvarp. 

En nei, ég var ansi hress á eftir að horfa á umræðurnar því deilt var um orðið "umframhagnaður".

Það getur aðeins verið mjög vitræn umræða byggð á rökum og þekkingu.

Ég hló mig máttlausan.

Hvað er eiginlega "umframhagnaður"?  Er það hagnaður sem er meiri en ríkið leyfir?

Þegar fyrirtæki er rekið, á það þá að passa sig á því að sýna ekki umframhagnað?

Ég veit það ekki, svei mér þá.

En ég fann þessa grein frá 1997 um "umframhagnað" og kvótamál.

Mér finnst mikilvægt að Alþingi ræði mál á faglegum nótum en ekki með einhverjum furðulegum hugtökum.

Alþingi á ekki heldur að setja fyrirtækjum í landinu fyrir hver arðsemi þeirra á að vera (eða umframhagnaður).

EBIDTA, er það hugtak enn mikið notað á Íslandi?

Í lokin vil ég benda á grein og bréf til Samtaka ferðaþjónustunnar sem Þór Saari skrifaði.  Það vekur upp umhugsun hvort það sé "umframhagnaður" í greininni.

Þetta á ekki að vera gagnrýni á ríkisstjórnina eða stjórnarandstöðuna, heldur aðeins smá umhugsun í byrjun dags.


Er Seðlabankinn að missa tökin eða endalaus tækifæri

Það hafa ekki verið góðar fréttir undanfarið hvað gjaldeyrismál varðar.

Gengisvísitalann hefur ekki verið hærri í langan tíma.

Gjaldeyrir virðist ekki vera að skila sér til landsins.

Seðlabankinn seldi evrur fyrir 12 milljónir til þess að reyna að styrkja krónuna en ekkert varð úr þeirri styrkingu.

Svo herti Alþingi lög um gjaldeyrishöft í von um að gjaldeyrir muni skila sér í útboði Seðlabankans.

Nú gefur hann til kynna að hann muni selja evrur í útboði í dag og hugsanlega setja lágmarksverð á gjaldeyrinn, þ.e. 1 evra á 255 krónur.

Það merkir að erlendir aðilar sem eiga krónur þurfa helst að bjóða 255 krónur fyrir evruna svo að Seðlabankinn taki tilboðinu.

Það er ansi hátt því gengi Seðlabankans í dag er 169,07 krónur fyrir evru. Lágmarksverðið er því u.þ.b. 50% hærra en skráð gengi bankans.

Það þurfa því að vera ansi órólegar krónur sem vilja taka þátt í uppboðinu, skildi maður telja.

Nema þá að hertu gjaldeyrishöftin gera það að verkum að erlendir aðilar sjá ekki annan kost á borði en að taka þessu tilboði.

Við getum einnig spurt okkur hvort að krónuútboð Seðlabankans verði þannig að þeir sem taka þátt í krónuuppboði bankans fái fleiri krónur fyrir evruna, þ.e. allt sem er undir 255 krónum.

Það getur sett enn meiri þrýsting á krónuna, þ.e. að enginn vill koma með krónur í landið nema í gegnum fjárfestingaleið Seðlabankans.

Það getur því verið tækifæri í dag til þess að fjárfesta langt undir fjárfestingarkostnaði innlendra aðila sem eiga aðeins viðskipti á Íslandi við íslenska banka.

Við skulum vona það besta og sjá hvað kemur út úr útboðinu í dag og svo hvað kemur út úr krónuuppboðinu.

Það er alltaf tækifæri fyrir einhverja að þéna á þessu.

Kaldbakur er dæmi um það eins og kom fram í fréttum í síðustu viku svo og erlendu aðilarnir sem eru að kaupa Vörð.

Nú gæti verið tækifæri fyrir þig að finna fjárfesta, fyrirtæki eða einstaklinga til að lána þér til stórframkvæmda á Íslandi eða í samstarfi með þér.

Ég reikna ekki með því að menn vinni svona: Grin


mbl.is Setur hugsanlega lágmarksverð í útboði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Lord of the Rings og Nýja Sjáland

Þegar fyrsta Lord of the Rings myndin var gefin út þá tóku ferðamálayfirvöld á Nýja Sjálandi upp á því að markaðssetja landið fyrir áhugamenn um Lord of the Rings.

Á heimasíðu ferðamálastofu Nýja Sjálands er sérstaklega hægt að smella á "Home of Middle-earth".

Í vetur voru þættirnir "Game of Thrones" teknir að hluta til á Íslandi.

Væri hægt að gera út á þá þætti á Íslandi?

Ég er viss um að margir Þjóðverjar myndu vilja fara á slóðir bókarinnar og kvikmyndarinnar 101 Reykjavík.

Margar pælingar og mörg tækifæri sem hægt er að nýta.


mbl.is Eftirspurnin kallar á uppbyggingu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Verður Jägermeister að Waldmeister?

jaegermeister_kraeuter_likoer_35_1_0l_flasche_liqueur 

Dýraverndunarsamökin Peta hafa ráðlagt framleiðendum Jägermeister að breyta nafninu í Waldmeister.

Samtökin telja að nafnbreytingin muni hafa jákvæð áhrif á sölu áfengisins.  Ástæðan er sú að þeir sem eru á móti veiðum á villibráð muni hægt og rólega hætta að kaupa áfengið í framtíðinni vegna nafnsins.

Peta leggur til að áfengið fái nafnið Waldmeister, en Waldmeister er þekkt lækningajurt.

Með þessu telur Peta að áfengið muni höfða til breiðari hóps neytenda.

Focus greinir frá þessu.

Mér finnst þetta mjög áhugavert en ég tel engar líkur á því að skipt verði um nafn á áfenginu.  Nafnið er það þekkt og nafnbreyting og svo þekktu áfengi er dýrt.

Það eru fleiri sem hugsa um áfengið Jägermeister en veiðar á villibráð þegar nafnið er nefnt. 

Allavega í mínu umhverfi, en ég er ekki í Peta.

Samt er þetta mjög virðingarvert hjá Peta að vera ekki aðeins á móti heldur koma í leiðinni með tillögu að breytingu.

Finnst þér nafnbreyting í lagi?  Það væri áhugavert að lesa hvað þér finnst.


Góð hugmynd fer illa af stað.

Mér finnst það mjög góð hugmynd að selja pakkaferðir á Þjóðhátíðina.

Það er samt ekki sérlega sniðugt að auglýsa pakkaferðirnar eins og nú hefur verið gert.

Þjóðhátíðarnefnd átti að semja við Herjólf þannig að fyrirfram væri ákveðið að selja pakkaferðir með Herjólfi.

Það hefur líklega verið gert, en að koma með eftirfarandi athugasemd á Facebook er ekki sérlega gott:

"Uppselt er í flestar ferðir til Eyja föstudag og laugardag fyrir Þjóðhátíð og mánudag og þriðjudag frá Eyjum eftir Þjóðhátíð.
Strax við upphaf sölunar í morgun keypti Þjóðhátíðnend verulegt magn miða í allar ferðir til Eyja fimmtudag og föstudag og frá Eyjum mánudag og þriðjudag. VIð bendum farþegum okkar góðfúslega á vefsíðuna
www.dalurinn.is"

Þetta fær marga til að halda að Þjóðhátíðanefnd ætli sér að selja miðana dýrar en Herjólfur og að það sé engin samvinna milli Herjólfs og Þjóðhátíðarnefnar.

Það er nauðsynlegt að samstarf komi fram hjá fyrirtækjunum.  Það er ekkert að því að Herjólfur þeim sem hafa á huga að mæta á Þjóðhátíð að bóka farið með Herjólfi hjá þeim, en ekki með þeim hætti sem hefur verið gert. 

Ég tel ekkert að því að aðeins verði hægt að bóka pakkaferðir til Eyja á þessum tíma.  Ein bókunarsíða ætti að vera nóg til þess en ekki tvær sem virðast vera í samkeppni.

Þetta verður flott næst.


mbl.is Keypti stóran hluta miða í Herjólf
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Grænland via Ísland

Í fréttinni um nýju Dash 8-200 kemur fram að áfangastöðum Flugfélags Íslands á Grænlandi hefur fjölgað í fimm og að tíðni flugferða hefur verið aukið töluvert.

Einnig kemur fram að 20% fleiri farþegar hafa bókað flug til Grænlands miðað við sama tíma í fyrra.

Getur verið að best sé að fljúga í gegnum Ísland til áfangastaða á Grænlandi?

Singapore hefur unnið að því, með öðrum þjóðum á svæðinu, að verða að miðpunkti ferðamanna á ferðum sínum um Asíu.

Icelandair flýgur með farþega til Íslands og Flugfélag Íslands með þá áfram til Grænlands.

Gott samstarf við Grænland í markaðssetningu getur falið í sér mörg tækifæri.  Hugsanlega einnig með Færeyjum.

Ég tel að náið samstarf þessara þjóða í markaðssetningu í ferðamálum fela í sér mjög mörg tækifæri í famtíðinni.

Ég er viss um það að starfsmenn Flugfélags Íslands eru að vinna sína heimavinnu mjög vel.


mbl.is Nýju DASH-vélarnar komnar í loftið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sérstaða í heimabyggð

Þetta er alveg frábært framtak og stór sniðugt að hefja bjórframleiðslu á Ísafirði.

Margir sem ferðast um landið vilja prófa eitthvað sem búið er til í nágreninu.

Margir ferðamenn sem kaupa sér bjór spyrja hver bjór staðarins er og kaupa þá hann.

Þarna myndast ákveðin sérstaða fyrir vestfirði þó svo að bjórinn einn og sér geri það ekki.

Þegar ég fór á ættarmót til Húsavíkur í fyrra þá heyrði ég marga ferðamenn spyrja hvaða íslenska bjór væri boðið upp á.  Ferðamenn spyrja hvaða bjór er boðið uppá á ferðum sínum um landið. 

Þetta gerum við sjálf erlendis, ef Carlsberg er ekki seldur á staðnum.

Nú er ekki lengur aðeins hægt að bjóða ferðamönnum á Ísafirði upp á Gull og Víking, heldur Ísafjarðarbjór.

Frábært framtak sem hægt er að búa til flotta sérstöðu í sambland við annað á svæðinu.

Í Berlín drekka menn Berliner Pilsener:


mbl.is Vilja brugga ísfirskan bjór
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Af hverju borga ferðamenn fyrir það sem er ókeypis?

Ég skil ekki ferðamenn.

Þeir borga fyrir að sjá eitthvað sem er einskis virði.

Það hefur ekki verið framleitt af fyrirtækjum og engin verðmætasköpun orðið til. 

Samt eru þeir tilbúnir að borga fyrir það.

Vatn sem frussast úr jörðinni, vatn sem fellur einhverja metra, sjávarspendýr, hæðir og fjöll, svo eitthvað sé nefnt.

Í staðin fyrir að borga fyrir að horfa á hverasvæði er eins hægt að snúa gufustraujárni á hvolf og horfa á gufuna.

Íslensk náttúra og dýralíf er einstæð.  Útlendingar vita það og það kemur að því að við áttum okkur betur á því að óspillt náttúra er meira virði en "spillt" náttúra.

Geysir er notað í þýsku og er samheiti yfir goshveri. 

Ástæðan er sú að útlendingar komu til landsins fyrir mörgum og skrifuðu um það.  Þeir lýstu sérstakri náttúru.  Náttúru sem var ekki eins og í heimalandi þeirra.

Það er nefnilega skortur á íslenskri náttúru í heiminum vegna þess að hún fyrirfinnst aðeins á Íslandi.

Þess vegna getum við selt hana og það dýru verði.


mbl.is 22.000 farþegar skoðuðu norðurljósin
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fjárfestingatækifæri, erlendir aðilar fá 25% afslátt

Það hefur mikið verið fjallað um gjaldeyrishöftin upp á síðkastið.

Í gjaldeyrishöftunum leynast mjög góð tækifæri til þess að fjárfesta hér á landi.

erlendur aðili fær u.þ.b. 25% afslátt hef hann kemur með lánsfé eða tekur beint þátt í fjárfestingu.

Þá skiptir engu hvort um nýfjárfestingu eða um kaup á fyrirtæki er um að ræða.

Eins og kom fram í fréttum í gær fá erlendir eigendur góðan afslátt með að kaupa Vörð að fullu. 

Áður hafa fyrirtæki eins og HS Orka verið keypt með svo kölluðum aflandskrónum.  Magma Energy græddi vel á því eins og fram kom í ársreikningum fyrirtækisins.

Ég veit ekki hvort að Húsasmiðjan hafi verið keypt með aflandskrónum en það hefur ekki komið fram en ég reikna með því, annað væru stór mistök af hálfu fjárfestanna erlendu.

Eins og fram kemur í frétt mbl.is um Vörð: 

"Fastlega sé gert ráð fyrir að hluturinn verði keyptur á 1.370-1.520 milljónir króna."

"Gerir BankNordik ráð fyrir að nýta sér að Seðlabanki Íslands býður útlendum fjárfestum, sem ætla að fjárfesta á Íslandi, afslátt á kjörum og því verði kaupverðið væntanlega 51-56 milljónir danskra króna. "

"það svarar til 1.146-1.259 milljóna íslenskra króna miðað við gengi dagsins í dag."

Það er því verið að veita u.þ.b. 250 milljón króna afslátt af kaupunum.

Einnig er í fréttum í dag að Kaldbakur, sem er í eigu samherja, er að selja skuldabréf fyrir 10 milljarða til erlends fjárfestis.  Þau kosta því erlenda fjárfestinn því aðeins um 7,5 milljarða króna ef fjárfestirinn fer leið sem Seðlabanki Íslands býður upp á.  Þannig getur erlendi fjárfestirinn strax bókað hagnað um 2,5 milljarða króna.

Hérna eru mikil tækifæri.

Ef þú getur fundið erlendan viðskiptafélaga eða banka, þá getur þú einnig sparað nokkrar milljónir eða nokkur hundruð milljónir.

Þeir sem gera þetta ekki, geta átt hættu á því að sitja eftir í samkeppninni. 

Þarna er nefnilega verið að veita frábæran möguleika á því að veita fyrirtækjum langtíma markaðsforskot, með því t.d. að lækka vöruverð og undirbjóða þannig samkeppnisaðila sem fyrir eru á markaðnum.

Ég mæli eindregið með því að þú farir að leita að lánsfé erlendis eða fjárfestingafélga.

Ef þú gerir þetta ekki, þá gerir þetta einhver annar.  Þessi annar, gæti verið í samkeppni við þig.


mbl.is Hægt að afnema höftin á 3 mánuðum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Tækifæri, íslenskur bitter

Hvernig væri ef íslenskir aðilar myndu sjá tækifæri í því að framleiða bitter ofan í alla þessa ferðamenn sem koma til landsins. 

Hann gæti t.d. fengið nafnið Ice-bitter eða Ís-bitter.

Ég hef komist á bragðið með að drekka áfengislausan bitter.  Hann heitir Sanbitter og er framleiddur af Sanpellegrino. 

Þarna sé ég tækifæri á Íslandi.

65037_x


Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband