Ferðaiðnaður: Stykkishólmur og sjálfbær þróun
4.3.2012 | 17:45
Ég ætla ekki að skrifa mikið í þessari færslu.
Ég er með myndband um Stykkishólm og ferðaiðnaðinn. Það sýnir í raun og veru hversu einfalt það er og spennandi að bjóða ferðamönnum upp á það sem er þegar til á svæðinu.
Það þarf ekki alltaf að búa til eitthvað nýtt heldur uppgötva hvað svæðið hefur upp á að bjóða. Það er mest spennandi.
Stykkishólmur fékk EDEN verðlaunin í fyrra og er því gæðaáfangastaður Íslands árið 2011. En hér er hægt að lesa meira um EDEN verkefnið, en það er á vegum ESB. Meira að segja búið að þýða kaflann um Stykkishólm á íslensku.
Það ættu öll sveitarfélög að læra af Stykkishólmi. Best að hringja strax á morgun og spyrja hvað þarf að gera.
Stykkishólmur sýnir einnig að allir eiga að taka þátt, eða hafa möguleika á því að taka þátt. Það er í raun númer eitt.
Viðskipti og fjármál | Breytt s.d. kl. 18:43 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)